Snjallari rekstur með Checkit
Hvernig sjálfvirkni og aðgangsstýring umbreyta bílastæðarekstri
Bílastæði og bílastæðahús eru ekki lengur bara spurning um malbik, steypu og hlið. Í nútíma rekstri eru þau mikilvægur hluti af stafrænum innviðum fyrirtækja og stofnana. Hjá Kvasir lausnum höfum við lagt ríka áherslu á tækni og nýsköpun við þróun á Checkit, með það að markmiði að færa rekstraraðilum fullkomna stjórn, gagnsæi og sjálfvirkni.

Öflug aðgangsstýring og kvótakerfi
Umsýsla í kringum fasta notendur, fyrirtæki og starfsmenn á stórum svæðum getur hæglega orðið óþægilega tímafrekt og umfangsmikið verkefni. Checkit leysir þetta með snjöllu kvótakerfi sem dreifir ábyrgðinni.
Gott dæmi um þetta er Höfðatorg en Þar starfa fjölmörg fyrirtæki sem deila aðgangi að svæðinu. Hvert fyrirtæki fær úthlutað ákveðnum kvóta af stæðum í kerfinu og getur stýrt því alfarið sjálft hvaða bílar hafa aðgang að þeim kvóta. Kerfið býður jafnvel upp á þann sveigjanleika að starfsmenn fyrirtækjanna haldi utan um sína eigin bíla sjálfir í gegnum viðmótið.
Rauntímagögn fyrir betri yfirsýn
Góð ákvarðanataka byggir á gögnum. Með Checkit veftólinu fá rekstraraðilar aðgang að ítarlegu mælaborði (dashboard) í rauntíma. Kerfið safnar sjálfkrafa saman upplýsingum úr myndavélakerfinu og greiðsluvélum og sýnir flæðið eins og það er hverju sinni.
Rekstraraðilar geta auðveldlega flett upp einstaka ökutækjum, séð stöðu þeirra og tekið út skýrslu sem sýnir heildarnýtingu svæðisins eftir tíma dags. Þetta gefur skýra mynd af því hvenær álagið er mest og hvernig notkun á bílastæðinu er á annatíma.
Sjálfvirkni sem lágmarkar handavinnu
Handvirk umsýsla í kringum bílastæði og innheimtu getur verið flókin og dýr. Checkit kerfið er hannað til að lágmarka þörfina á handvirkum afskiptum eins og kostur er.
Allt ferlið er sjálfvirkt. Frá því að myndavél greinir númeraplötu við komu, þar til greitt er í sjálfsala eða eftirá á checkit.is. Bakendinn sér um að para saman ferðir og greiðslur og uppfæra stöður. Fyrir vikið minnkar álag á þjónustuver og hætta á villum er lágmörkuð
Checkit gefur rekstraraðilum tæknina til að reka svæðin sín á mun skilvirkari og snjallari hátt en áður var mögulegt. Með sjálfvirkni og lágmörkun á handavinnu er einnig þörf á auka þjónustugjald eða "sektum" eytt. Ef ekki er greitt á staðnum er bíleiganda einfaldlega flett upp og hann fær bílastæðagjaldið sent í heimabanka að viðbættu seðilgjaldi sem er oft í kringum 100 krónur.
Framtíðin er stafræn
Með Checkit eru Kvasir lausnir að leiða þróunina í stafrænni bílastæðastýringu á Íslandi. Við höldum áfram að þróa kerfið reglulega og bæta við nýjum möguleikum byggðum á endurgjöf frá viðskiptavinum okkar.
Viltu sjá hvernig Checkit veftólið og kvótakerfið geta einfaldað þinn rekstur og minnkað handavinnuna? Hafðu samband við okkur hjá Kvasir lausnum í dag og við sýnum þér kerfið í virkni.



